hahahah gg xD

Þrír bretar hittust í Afganistan og eftir kynni ákváðu þeir að fara á fyllerí saman í borginni. Þeir finna pub og fá sér nokkra og eftir dágott spjall fer spjall þeirra að snúast um enska boltan og komust að því að einn hélt með Leeds annar með Man Utd og svo þriðji var Liverpool-ari. Eftir dágóða stund og öllara voru þeir komnir í hár saman og endaði það með slagsmálum og ólátum þannig að þeir voru handteknir og settir í gæsluvarðhald.

Dæma áttu yfir þeim og endaði dómurinn þannig að þeir ættu að fá 50 svipahögg hver en mættu biðja um eitthvað tvennt sem gætu komið þeim gagni meðan þeir væru refsaðir.

Það var byrjað á Leeds-aranum, hann bað um að setja kodda á bakið á sér og svo læknishjálp eftir höggin, eftir 15 högg þá fór koddin af og hann kvaldist mjög eftir allt saman og læknir gat lítið annað en sett smyrsl á þetta og gefið honum verkjatöflu.

Man Utd gæjinn sá það að það þýddi lítið að hafa læknirinn þannig hann bað um 2 kodda á bakið á sér þannig að eftir 30 högg þurfti hann aðeins að þola 20 svipuhögg og var þó mun skárri en Leeds-arinn.

Liverpool gæjinn var næstur og síðastur, hann fór þó aðra leið og bað um að það yrði bætt við 200 höggum og Man Utd gæinn yrði settur á bakið á sér og síðan laminn. Ekki var sagt frá því hvernig Man Utd gæinn endaði en okkur er alveg skítsama.
bíddu eru öll ljós kveikt en engin heima