Ja hérna, Big Sam rekinn frá Newcastle. Sjálfur er ég mikill Newcastle stuðningsmaður og kom þetta svolítið á óvart, sérstaklega þar sem maður hefur lesið að klúbburinn myndi þurfa að borga um 15 - 20 milljónir punda fyrir að rifta samning við hann. Persónulega vildi ég sjá hann áfram, einungis upp á þá von að eitthvað væri að batna. Liðið spilaði því miður alveg hundleiðinlegan bolta undir hans stjórn svo ég er sáttur að því leiti.
En hvað segja þessir fáu Newcastle stuðningsmenn hér á Huga, sem ég veit um allavega, um þetta og þið hin auðvitað líka.

Lesa nánar Hérna og Hérna