Eiður Smári skoraði á sunnudaginn 9. mark sitt á leiktíðinni þegar hann innsiglaði stórsigur Lundúnaliðsins á Liverpool, 4:0. Eiður hefur þar með skorað 22 mörk fyrir Chelsea í þeim 53 leikjum sem hann hefur leikið með liðinu frá því hann gekk í raðir þess frá Bolton í júnímánuði í fyrra.
Eiður hefur verið sérlega heitur upp við markið í síðustu leikjum og ekki ómerkari lið en Manchester United, Liverpool og Leeds hafa öll þurft að sækja knöttinn úr neti sínu eftir mörk frá Eiði Smára á undanförnum vikum. Og Eiður kann greinilega vel við sig þegar hann mætir Liverpool. Í fyrra skoraði hann eitt mark og lagði upp annað fyrir Jimmy Floyd Hasselbaink og það sama gerði hann á sunnudag.