Kæru fótboltafíklar


Nú er farið að draga til tíðinda í Meistaradeildinni og næstkomandi
þriðjudags- og miðvikudagskvöld eru úrslitaleikir í riðlakeppninni.
Við munum að sjálfsögðu sýna frá þessu og með þessum pósti er
hvatningarauglýsing til allra áhugamanna um fótbolta að koma og horfa
í Von (Efstaleiti 7). Það eru allir velkomnir, bæði ungir sem aldnir.
Það hafa þannig verið gestir frá 9 ára og á áttræðisaldur.



Sunnudaginn 16. desember munum við svo sýna einn af þessum RISA
leikjum, en þá keppa hinir fornu fjéndur Liverpool og Man. United í
ensku úrvalsdeildinni. Þetta verða menn að sjá á breiðtjaldi og enn
eru áhugamenn um dramatík hvattir til að mæta. Leikurinn byrjar
klukkan 13:30



Sem sagt: Allir velkomnir á öllum aldri(Auðvitað er ekkert áfengi
leyft). Ég bið ykkur því um að koma þessu áfram.

Bætt við 10. desember 2007 - 19:44
Það er í Reykjavík.
Þetta er göngudeild SÁÁ.