Las í mogganum í dag að uppáhaldsleikmaður minn til margra ára, Romário de Souza Faria, væri með tilboð frá Inter! Ég hef ekki fundið neitt meira um þetta á netinu, en ef þetta er satt væri það frábært. Mér finnst þetta reyndar mjög ólíklegt sökum þess hve kallinn er orðinn gamall. Síðan hefur hann líka getið af sér það orðspor að vera latur. Væri hins vegar gaman að sjá RoRo bræður saman í framlínu inter!