Patrik Andersson, varnarmaður
Barcelona, hefur verið útskrifaður af
sjúkrahúsi þar sem hann dvaldist í einn
og hálfan sólarhring til eftirlits
eftir að hann fékk mjög þungt höfuðhögg
þegar hann lenti í samstuði við
varnarmann Celta Vigo í leik á
sunnudag.

Andersson missti meðvitund um
stundarsakir en er heill heilsu og
mætir væntanlega á æfingu á morgun.