Já United töpuðu fyrir stuttu gegn Chelsea 3-0.
Sjálfur er ég United áhugamaður og fannst sárt að horfa
upp á “sjálfa meistaranna tapa” Nú hafa United menn tapað
gegn Bolton, Leicester, Arsenal, Newcastle og síðast gegn Chelsea.
Ef þið takið upphafstafinn hjá öllum liðunum kemur út “Blanc”
Þá er ég að vísa til ellilíferisþegans Laurens Blanc 37 ára
varnarmaður, hann átti að fylla upp í skarð Jaap Stam sem fór til
Lazio en hefur átt afspyrnuslakt tímabil með Man.utd. Kannski
guð álmáttugur sé að reyna að segja okkur eitthvað með þessu?!