Með þessum úrslitum finnst mér Liverpool vera að staðfesta að þeir séu á leiðinni að gera svaðalega atlögu að titlinum.

Það sem hefur verið að skemma fyrir Liverpool undanfarin ár eru þessi minni lið. Liverpool hafa ekki verið að klára lið sem hafa verið að enda í 8-20 sæti.

Í dag voru hvorki Gerrard né Carragher með, en samt spilar liðið fantagóðan fótbolta.

Ef þetta er ekki staðfesting á því að Liverpool séu til alls líklegir í titilbaráttunni, þá veit ég ekki hvað.