Hinn ótrúlegi þjálfari Chievo á Ítalíu, Del Neri, segir að það sé mjög einkennileg tilfinning að stjórna því liði á Ítalíu sem allir vilji vinna í dag.
Hann segir að honum líði eins og Osama Bin Laden.
“Eltingaleikurinn við Chievo er byrjaður og mér líður bara eins og Osama Bin Laden. Við spilum við Milan, Inter, Lazio og Roma í næsta mánuði og það er frábær jólagjöf,” sagði Del Neri.

Chievo vann Perugia um helgina og er því enn í efsta sæti deildarinnar - stigi á undan Inter.