Robbie Fowler segist vera himinlifandi með það að fá loksins leyfi frá Liverpool til að setjast að samningaborði hjá öðru félagi eftir að Liverpool samþykkti tilboð frá Leeds upp á 11 milljónir punda. Hann sagðist fara með söknuði frá heimaborg sinni en fagnaði því að fá fast sæti í einu af toppliðum Englands.

Ég held að drengurinn eigi eftir að gera góða hluti með Viduka eða Smith frammi með sér. Hins vegar þá finnst mér þetta verð vera of lágt fyrir þennan fótafima snilla.

Gazza