Þetta er aðallega beint að Man Utd og Liverpool aðdáendum en hinum er velkomið að svara líka.

Hvað finnst ykkur um þetta mál alfarið?
Fyrir þá sem ekki vita þá vill Liverpool kaupa Heinze en Ferguson, Gill og fleiri segja það ekki koma til greina að selja einhvern til Liverpool. Núna vill Heinze blanda lögfræðingum í þetta.

Sjálfur styð ég Ferguson og stjórnina og finnst út í hött að Heinze hugsi einu sinni að fara þangað og að Benitez skuli alfarið reyna að kaupa hann. Aldrei í sögunni hefur leikmaður farið á milli þessar tveggja liða og er ástæða fyrir því. Ég myndi aldrei vilja mann frá Liverpool eða að Man Utd maður fari til Liverpool. Fyrst þeir eru til sölu er alltaf önnur til boðanna.

Ég hef misst allt álit á honum núna. Hann spilaði vel áður en hann meiddist en eftir meiðslin hefur hann verið slappur og nú þetta. Argentínumenn er venjlegast ekki vinsælir meðal Englendinga og þetta bætir ekki úr því. Ef það færi svo að hann yrði seldur þá væri það verra en þegar Figo fór til Real frá Barcelona.
“There's no such thing as stupid questions, just stupid people.”