Manchester United gætu verið að gera tilboð í Santiago Solari frá Argentínu en hann leikur með Real Madrid. Solari og Veron eru jafngamlir og miklir félagar. Síðan Solari byrjaði að leika með Real Madrid síðasta sumar hefur hann fengið mjög fá tækifæri. Í samningnum er ákvæði um að hann megi fara fyrir 5 milljarða peseta, sem eru um £18 milljónir punda. Fjölmörg ítölsk félög vilja einnig fá hann í sínar raðir og Lazio voru tilbúnir að fá hann lánaðan út leiktíðina í ágúst en samningaviðræður fóru út um þúfur þegar þær virtust vera komnar á gott skrið.
United eru hins vegar taldir eiga góða möguleika á að ná honum og þar gæti Juan Veron gert mikið gagn.