Veigar Páll Gunnarsson leikmaður Strömsgodset og fyrrverandi leikmaður stjörnunar hefur rift samningi sínum við Strömsgodset. Í samningi hans var klausa sem stóða að hann mætti rifta samningnum ef liði félli. Veigar er því kominn heim og mun spila hér á landi næsta sumar. Sást til Veigars hjá sínu gamla félagi stjörnunni á æfingu en mjög ólíklegt er að Veigar Páll muni snúa aftur þangað þar sem mörg lið hafa sýnt Veigari áhuga og hafa sett sig í samband við hann, meðal þessarra liða eru KR, Grindavík og Fylkir. Veigar hefur ennþá ekki tekið neina afstöðu hvert hann ætli að fara en nokkuð ljóst er að hann fari ekki til baka til stjörnunnar.