Luciano Moggi, yfirmaður knattspyrnumála hjá Juventus, hefur misst þolinmæðina gagnvart Tékkanum Pavel Nedved en Tékkinn hefur leikið einstaklega illa það sem af er vetri.

Moggi segir að Nedved sé í hræðilegu líkamlegu formi og að oft á tíðum líti út fyrir að hann eigi í vandræðum með að rekja boltann.

Moggi segir jafnframt að Edgar Davids sé ekki enn búinn að finna sitt gamla form eftir dópbannið og þar liggi vandi Juve að miðjumennirnir séu ekki búnir að koma sér í gang.