Jæja þá er búið að draga í meistaradeildina í 8 liða úrslit og það eru ekki lið af verri endanum

AC Milan - Bayern Munchen: Ég spái Bayern Munchen áfram hér, þeir stóðu sig frábærlega á móti madrídingum og sannaði Maakay að hann er ennþá einn mesti markaskorari seinni tíma.

PSV - Liverpool: Hérna verður hörkujafn leikur en ége spái að Liverpool sé of stór biti fyrir PSV en allt getur gerst í fótbolta eins og sást í PSV - Arsenal.

Chelsea - Valencia: Hérna tel ég að stærsti leikurinn sé á ferð. Tvö rosaleg lið að mætast og þar sem Valencia sló út Inter þá spái ég þeim áfram. David Villa hefur verið eftirsóttur af Chelsea og hann sýnir hér af hverju og skorar 3 mörk í báðum viðureignum samanlagt.

Roma - ManUtd: Þetta verður þvílíkur leikur. Mitt lið Roma mætir hér Manchester United sem hefur verið on fire alla leiktíð. ManUtd verður að passa sig á Mancini sem skoraði flottasta mark sem ég hef séð(kannski ekki alveg en samt geðveikt mark)http://www.youtube.com/watch?v=ncp_Tt45RkM&mode=related&search=
En þessi leikur verður jafn en ég spái ManUtd áfram þrátt fyrir að ég haldi með Roma

Hérna er mín spá og allt það fyrir leiki meistaradeildarinna
Newcastle United!!!!!!