Rivaldo hefur ákveðið að spila eitt tímabil í viðbót með Olympiakos sem eru frábærar fréttir. Ég vona að þeir lendi þá í riðli með Man Utd eða Arsenal í Meistaradeildinni næst því þá verða allavega sýndir tveir leikir með þeim.
Rivaldo er sko ekki dauður úr öllum æðum. Hann er markahæstur í grísku deildinni og sýnir reglulega flotta takta. Það er hægt að sjá flest mörkin sem hann hefur verið að skora á youtube.com.