Veit ekki hvort þið hafið vitað af þessu eða ekki en þetta var hörkuslagur :D http://www.youtube.com/watch?v=SpilMcqlbZg þetta er undir 23 ára landslið Kínverja á móti QPR, þessir kinverjar hafa enga sjálfsstjórn og væri ég því miður ekkert á móti því að sja þá nokkra liggjandi ofaní kúarskít. Endilega komið með álit ykkar á þessu máli og bara með slagsmál yfir höfuð sem eiga sér stað inná knattspyrnuvellinum? leiðir til að stoppa svonalagað því þetta eru óþolandi atvik þarsem fótboltinn á aðeins að snúast um, Gleði,Reiði,Spenning og Pressu .Slagsmál inná knattspyrnuvelli eru alveg útí hött, allt annað þegar fólk er að henda ljótum orðum á milli, en að hafa enga virðingu fyrir fótboltanum sjálfum og taka uppá því að slást er tómt rugl. Mín skoðun er sú að það eigi að leysa alla þessa leikmenn sem sáust slást undan samningi. Það þarf að taka harkalega á svona rugli.