Ok ég veit að misjafn er mannana smekkur, en er virkilega stór hluti fólks sem finnst Liverpool skemmtilegasta lið deildarinnar? Svo er að minnsta kosti samkvæmt þessari skoðanakönnun sem nú er í gangi. Eða er það bara þannig að það velja allir það lið sem þeir halda með og eru algerlega blindir á leik liðsins. Að mínu mati, og margra annarra, spilar Lpool virkilega leiðinlegan, varnarsinnaðan fótbolta.

Það virðist bara vera þannig að það sé ekki hægt að ætlast til að fá raunhæf svör úr þessum skoðanakönnunum þar sem spurt er um lið í enska boltanum, þar sem niðurstöðurnar segja bara til um hversu margir haldi með hvaða liði. Common … ég veit að það finnst ekki 25% allra knattspyrnuáhugamanna Liverpool spila skemmtilegasta boltann í deildinni. Af hverju ekki bara að svara eftir bestu samvisku til þess að fólk fái smá raunhæfar niðurstöður í þessar kannanir.

Eða er ég kannski bara heimskur og Liverpool spilar stórskemmtilegan fótbolta?