Núna í desember og janúar stendur yfir kynningarmót í Futsal á vegum KSÍ.
Í dag fóru fram tveir leikir.

Í íþróttahúsinu í Safamýri mættust Fram og Fylkir. Staðan í hálfleik var 0-0 og lokatölur voru 1-9 Fylki í vil.
Í íþróttahúsinu í Keflavík áttust við Njarðvík og Víkingur R. Staðan í hálfleik var 6-2 og lokatölur voru 14-4 Njarðvík í vil.

Á morgun fer svo fram einn leikur, Grótta tekur á móti Val í íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi og hefst leikurinn kl. 16:30.

Næsta umferð fer svo fram um næstu helgi:
8. desember mætast Fylkir og Njarðvík í Fylkishöll kl. 21:00.
9. desember mætast Valur og KR í Laugardalshöll kl. 16:00 og Grótta og Fram í íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi kl. 16:30.
Kveðja,