Ný fæddur drengur í Norfolk, Englandi var skýrður í höfuðið á Sir Alex Ferguson og 19 öðrum liðsmönnum Manchester United. Fullt nafn drengsins er Alex Feruson Barthez Silvestre Neville Johnsen Irwin Stam May Beckham Keane Scholes Butt Veron Giggs Chadwick Cole Yorke Nistelrooy Solskjaer. Það þarf varla að taka fram að faðir drengsins, hr. Glover-Manguzi er mikill aðdáandi fótboltaliðsins. “Ég var á móti ‘Trafford’ nöfnum fyrr á árum en núna finnst mér þau frábær” segir Jode Glover-Manguzi. “Ég bjóst við að konan og fjölskyldan væri á móti þessu en þeim finnst þetta bara allt í lagi. Hann er sonur minn og ég skýri hann því sem mér sýnist. Það er erfitt að útskýra þetta, þetta er þráhyggja.” Talsmaður Manchester United segir að þetta sé ekki í fyrsta skipti sem barn er nefnt eftir leikmönnum liðsins, en væntanlega ber Alex nöfn flestra leikmanna.
- Á huga frá 6. október 2000