Jamm, góður leikur, frekar jafn og skemmtilegur, ég er stoltur þróttari í dag, það er ekki spurning. KR-ingarnir voru jarðaðir uppi í stúku, en það er víst ekki nóg, það þarf að vinna inni á vellinum líka.
Jarðaðir upp í stúku ertu að grínast?!?!?!?! hahah við sungum allan leikinn hástöfum heyrðum aldrei í ykkur, enda var ófáu sinnum kallað yfir til ykkar. ÞAÐ HEYRIST EKKI RASSGAT. og ER BATTERÍIÐ BÚIÐ KR batteríið kláraðist amk aldrei hjá okkur. Voruð JArðaðir bæði uppí stúku og á vellinum.
Eitthvað er þetta nú skrýtið þar sem við heyrðum ekki heldur í ykkur, það er nú bara kannski þannig að þegar maður er öskrandi á fullu, þa er erfitt að heyra hvað er að gerast í hinum endanum. :)
amm kannski rétt. Maður er amk vel hás eftir hressileg átök. En ég var að meta gaurinn sem hljóp fyrst inná. hahahah slapp alveg, komst yfir völlin án þess að verðirnir næðu honum og náði að hlaupa í hina stúkuna, ég frétti það að hann hafio ekki náðst.
Óskemmtilegt að segja frá því að upphaf sóknarinnar sem mark KR var skorað úr var einmitt hendi. Ég ætla ekki að vera segja að ég sé neitt mikið bitur en þegar lið, sérstaklega KR, skorar í framlengingu þar sem boltinn var tekinn niður með hendi er ömurlegt.
Kannski tók fólk ekki mikið eftir því á leiknum en þetta sést greinilega í sjónvarpinu.
“There's no such thing as stupid questions, just stupid people.”
Ég tók alveg eftir þessu. Þetta var engann veinn vísvitandi hendi, boltinn skoppaði asnalega og fór í hendina. Næsti Þróttari var nú 20 metrum frá boltanum þanni þetta hafði ekki mikil áhrif á leikinn á þessu momenti en maður skilur kannski gremju Þróttara við að fá mark strax í næstu sókn.
Ahm.. alltaf spurning hvort á að láta leikinn ganga eða flauta.. hér var um að ræða “bolta í hönd” og enginn andstæðingur neins staðar nálægt svo ef dómarinn hefur á annað borð séð þetta (sem ég efast svosem um), þá hefur í sjálfu sér ekkert verið ástæða til að flauta því það hafði svo lítil áhrif á gang leiksins. Gremja Þróttara er samt vel skiljanleg.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..