Mér finnst frekar ömurlegt að maður hafi keypt rándýra miða á þennan leik til að sjá Eið Smára og allar spænsku stjörnurnar þegar þrír leikmenn munu svo ekki einu sinni spila. Staðfest hefur verið að Eiður, Carles Puyol og Xavi munu ekki mæta til leiks.

Auðvitað skil ég vel að félagsliðin vilji ekki missa menn sína í landsleiki og einnig er skrýtið af hverju það voru settir á landsleikjadagar í þessari viku þegar félagsliðin á Englandi og Spáni eru að hefja sín leiktímabil. En þar sem þessi leikur var á annað borð settur á þá finnst mér það hneisa að við fáum ekki að sjá það sem við borguðum fyrir.
Bassar: Fender Precision Lyte MIJ, Fender Jazz Bass '75 RI CIJ