Það hefur nú fengist staðfest að Hector Raúl Cuper, þjálfari Internazionale, hefur valið Ronaldo í leikmannahóp sinn fyrir leik Inter gegn rúmenska liðinu Brasov í UEFA Cup annað kvöld (20. sept). Þetta eru auðvitað frábærar fréttir fyrir alla boltaáhugamenn, við erum búnir að vera án þessa leikmanns allt of lengi. Ronaldo mun þó ekki vera í byrjunarliðinu, heldur eru það Mohammad Kallon og nýstirnið Adriano sem hefja leikinn í framlínunni. Það eina sem skyggir á gleðina hjá Inter er að enn er eitthvað í að Ronaldo og Christian Vieri leiki saman; Vieri á við einhver meiðsl í hásin að stríða (að mér skilst) og verður frá í amk mánuð. En það verður allavega gaman að sjá hvernig Ronaldo stendur sig annað kvöld!