Patrick Viera til United?


Sir Alex að undirbúa tilboð í fyrrverandi fyrirliða Arsenal ?

Síðasta sumar fór Partick Viera frá Arsenal til Juventus fyrir 13,7 milljónir punda, en nú er Juventus fallið í seríu B á Ítalíu og með mínusstig, fyrir þátt sinn í hneykslismálinu.


Manchester United vantar miðjumann til að fylla í skarðið sem fyrrverandi fyriliðinn, Roy Keane, skildi eftir sig hjá Manchester.

“Allir stjórar verða að skoða leikmenn Juventus, það er engin spurning um það,” Sagði Ferguson.

“Við erum að ræða við nokkur félagslið, en staða Juventus setur okkur í sterka stöðu.”

“Við höfum ekki gert nein viðskipti, við vildum vita stöðu Juventus. Nú viljum við fá að vita, hvað þeir vilji fá fyrir leikmennina, og kannski bjóða í einn eða tvo leikmenn.”

Viera myndi kosta okkur litla peninga, eða um 5 milljónir punda og myndi það setja okkur í betri stöðu til að fá nýjann mann í stöðu Ruud Van Nistelrooy, sem er að öllum líkindum á leið til Spánar til að spila fyrir Real Madrid.