United hafa ekki gert tilboð í Torres

Tekið af www.manutd.is

Manchester United hafa ekki gert tilboð í hinn snjalla framherja Athletico Madrid, Fernando Torres, samkvæmt umboðsmanni hans.

Hinn 22 ára Spánverji hefur verið orðaður við Manchester United til að taka stöðu Ruud Van Nistelrooy, sem er orðaður frá félaginu.

“Okkur hefur ekki verið boðið neitt tilboð, ekki frá neinum klúbbi sem stendur” Sagði umboðsmaður Torres, Antonio Sanz.

Sanz bætti við: “Þann 21 júlí mun Fernando Torres mæta til æfinga hjá Athletico Madrid”

“Torres á 2 ár eftir af samningi sínum og við sjáum hvernig fram vindur eftir það.”