Eftir að hafa gert jafntefli við Aston Villa í síðustu umferð held ég að það sé alveg morgunljós að United falla í ár, þeir eru búnir að vera að sýna “crappy” fótbolta allt tímabilið (alla þrjá leikina!) og eru ekki enn búnir að tapa leik. Þvílíkir aular!

Einnig hljóta allir að gera sér grein fyrir því hvílík hörmungarkaup Ferguson var að gera í Nistelrooy og Veron! Þeir eru aðeins búnir að hafa örfáa leiki til þess að falla inní leik liðsins og það er greinilegt eftir þessa fáu leiki að þeir munu aldrei gera það, þvílíkir skítaleikmenn! Ferguson ætti að setja þá báða á Free Transfer helst strax í gær!

Já, United hafa sko aldeilis gert í buxurnar í ár, og ekki nema 35 leikir eftir! Fallið blasir við, því miður.

JohnnyB, eitilharður stuðningsmaður United!

(sumar greinar ætti ekki að birta…)
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _