Í kvöd mættust Real M og Villarreal og endaði leikurinn 3-3 en þetta var kveðjuleikur Zidane á heimavelli og jafnframt skemmtilegasti leikur þessa tímabils held ég. Það var action frá upphafi til enda. 6 mörk, tvö skot í stöng, mörg góð færi og rautt spjald.
Þvílíkur leikur og það verður hörkuspennandi síðasta umferð það sem Real Madrid mætir Sevilla, sem á reyndar möguleika á 4 sætinu. Og svo mætast líka Valencia og Osasuna sem þarf helst sigur til að halda 4 sætinu.
Sevilla er 3 stigum á eftir Osasuna og eiga leik til góða sem er reyndar á móti Barcelona.
Hörkuspenna í langskemmtilegustu deildinni.