Liverpool verða ensku meistararnir, við eigum kanski eftir að sökka í evrópu, en ensku deildina tökum við. Einfaldlega vegna þess að Houllier var ekki að eyða stórum peningum í stór nöfn. Sjáum Man Utd, þeir keyptu Veron og Nistelrooy, og Fergie verður að hafa þá í liðinu, vegna þess að þeir kostuðu rétt rúmlega fjárlög smáríkis í asíu. Liverpool er með nærri óbreytt lið frá því í fyrra, fyrir utan Jon Arne Riise (hver er það og hverjum er ekki sama?) Berger kemur inn, Litmanen kemur inn, Fowler er sulta, þetta á allt eftir að ganga upp með Samy Hyypia i broddi fylkingar. Þeir sem að halda með Man Utd og halda að þessi grein sé piss….. EKKI SVARA HENNI!!!! Þetta er skrifað fyrir alvöru Liverpool menn sem vita það jafn vel og ég hverjir eru bestir.