Nú langar mig til að koma með smá tillögu hérna á þetta spjallborð og kanna hug manna. Þetta kemur ekki beint ítalska boltanum við vegna þess að ég er að tala um spænskt lið.
Mig langar að vita hvort það sé einhver áhugi hjá einhverjum að stofna aðdáenda klúbb hér á Íslandi um Real Madrid.
Til þess að geta orðið fullgildur klúbbur þurfa að vera að minnsta kosti 50 skráðir meðlimir í svona klúbbi svo hann fái inngöngu og öðlist gildi sem aðdáenda klúbbur hjá Real Madrid.

Látið endilega í ljós hug ykkar og kannski er möguleiki að vit gætum stofnað klúbb hérna á landi um Real.