Sergio Cragnotti, forseti Lazio, hefur lýst því yfir að miðjumaðurinn Juan Sebastian Veron gangi til liðs við Manchester United í næstu viku. Kaupverðið er $40 millur og gengið verður frá endanlegum samningi strax eftir helgi. Í pundum er kaupverðið 23.5 milljónir og er það nýtt met í ensku deildinni. Það verður gaman að fylgjast með því hvernig Veron plumar sig í premiershippinu - það er ekki það oft sem S-Ameríkumenn í fremstu röð spreyta sig í Englandi.