Aston Villa og Coventry eru þessa dagana að gera leikmannaskipti á Marakómanninum Moustapha Hadji og Julian Joachim.

Villa mun þó líklega þurfa að borga Coventry einhvern seðil þar sem Hadji er dýrari en Joachim.

Báðir aðilar eru víst í skýjunum með það að þetta sé að ganga upp.
Joachim er mjög ánægður með það að geta fengið að spila meira en Hadji vill síður spila í 1.deild.

,,Ég er mjög ánægður með það að fá að spila og mun vonandi eiga fast sæti í byrjunarliði Coventry´´. Sagði Joachim.

En eins og allir vita sendu Aston Villa Coventry niður í 1.deild.
Nokkrir spámenn spá Jochim markakóngi 1.deildar.