Já, þetta er staðfest og sannarlega ekki gleðiefni fyrir aðra en Juventusáhangendur. Kaupverðið var $35 milljónir (sorrý fyrir dollarana - ég held að þetta séu ca. 20 milljónir punda) og launin eru um 2 millur punda á ári. Spurning hvort að það fari ekki allir að flýja frá Tardini fyrst Thuram er farinn…allavega freistandi fyrir Cannavaro og Buffon að láta undan einhverju gylliboðinu og stinga af. Það virðist því sem Parma ætli að ganga hægt að komast á toppinn - þeir eru búnir að vera við hann síðustu ár en aldrei náð alla leið . . . . .