Ég veit ekki hvort það er leyfilegt að auglýsa dót til sölu hérna. Ef ekki, þá biðst ég afsökunar og þið getið læst/hent þessum þræði.

Þið kannist kannski við SS leikinn sem er í gangi? Allavega, ég vann ferð fyrir tvo 5. - 8. ágúst til London, ásamt miðum á æfingaleik Tottenham og Porto og leikinn um góðgerðarskjöldinn á milli Chelsea og Arsenal. Inni í pakkanum er einnig gisting á Holiday Inn City Express hótelinu, sem mér skilst að sé mjög gott hótel staðsett í hjarta Lundúnaborgar.

Ég hef engan áhuga á knattspyrnu sjálfur og í stað þess að fara til London og láta miðana á leikina fara til spillis þá datt mér í hug að það væri ef til vill sniðugra að bjóða einhverjum knattspyrnuunnanda ferðina til sölu. Tek við tilboðum á anti@simnet.is. Ég tek ekki við tilboðum undir 60.000 (frekar skelli ég mér þá sjálfur án þess að fara á leikina.)

Biðst aftur afsökunar ef fólk hefur eitthvað á móti svona auglýsingum hérna, en ég leyfði mér að halda að fólk sem sækir þetta áhugamál, gæti haft áhuga á þessu.