Jæja þá get ég loks sagt ykkur öllum sem hafa haldið að Patrick Vieira hafi verið á leið til Juve, Barca eða Man Utd að þið hafið haft rangt fyrir ykkur. Hann er eki að fara neitt og hefur ekki einu sinni beðið um fund með Arsene Wenger þannig að hann er mjög sáttur á Highbury. Ég get bara ekki skilið hvað fær fólk til að trúa því að Patrick Viera sé á leið frá Arsenal til Man Utd. Man Utd fær aldrei Vieira og Vieira mundi aldrei vilja ganga úr Arsenal og yfir til Man Utd. En það er nú orðið staðfest að Vieira er ekki að fara neitt og ég vil ekki heyra neitt um það meir.