Íslendingar gerðu nú rétt í þessu jafntefli við Búlgari í knattspyrnu. Í fyrri hálfleik léku Íslendingar undan strekkingsvindi, og skoruðu eina mark hálfleiksins, á 43. mínútu, þegar Ríkharður Daðason skoraði eftir aukaspyrnu Eiðs Smára. Vindinn lægði mjög í hálfleik og Íslendingar voru mun meira með boltann í síðari hálfleik, en tókst þó ekki að skora þrátt fyrir mörg góð færi. Búlgarar jöfnuðu leikinn á 80. mínútu eftir aukaspyrnu, en Helgi Sigurðsson braut mjög klaufalega á sér rétt við vítateigshornið hægra megin.