Marcelo Salas greindi frá því um helgina að það kæmi aðeins til greina að fara frá Lazio ef tilboð bærist frá Real Madrid. Hann bætti reyndar við að ekkert tilboð hefði borist en skilaboðin til forráðamanna Real eru skýr.

Lazio hefur spáð í því áður að losa sig við Salas og reyndu þeir það meðal annars síðasta sumar en Salas neitaði að fara. Það má því búast við því að þeir reyni að koma honum til Real í sumar.