Peter Taylor telur að Beckham hafi vaxið mikið sem fyrirliði og þá sérstaklega í seinust tveim leikjum. “Hann talar mikið meira, sérstaklega í búningsherberginu og það finnst mér mikilvægt. Hárgreiðslan? Mikilvægasti hluturinn fyrir mig er hæfileikar Beckhams ekki hárgreiðslan. Ég sé margar mismunandi hárgreiðslur nú á dögum og ég held að ég sé svolítið gamaldags. En ég tel að þetta sé rétt miðað við tímann sem er árið 2001.

Gary Lineker ”Tíminn fyrir landsleiki er mikilvægur og mér finnst það skrítið að hann skuli draga athygli að sér svona rétt fyrir næstu leiki Englands. Af myndunum sem ég hef skoða þá lítur þetta fáránlega út. Ég hefði aldrei klipppt mig svona en með mín eyru þá hefði ég litið út eins og hálfviti.