Kevin Keegan var í gær ráðinn framkvæmdastjóri Manchester City. Hann tekur við af Joe Royle sem var rekinn síðastliðinn mánudag.

Keegan gerði fimm ára samning við félagið og á hann að vekja gömlu góðu dagana hjá félaginu.

Keegan hefur ekkert þjálfað síðan hann var rekinn sem þjálfari enska landsliðsins.