Frakkinn Zinedine Zidane hefur endanlega bundið enda á þær sögusagnir að hann sé á leið frá Juventus í sumar með því að lýsa því yfir að hann ætli að vera í Tórínó og hafi ekki í hyggju að fara til Real Madrid.

“Ég verð áfram hjá Juve og það er engu við það að bæta,” sagði kappinn.

Þetta er mikið áfall fyrir Florentino Perez, forseta Real Madrid, því hann var tilbúinn að gera ansi mikið til að ná Zidane og var talað um háar fjárupphæðir ásamt leikmönnum í því sambandi.