Framkvæmdastjóri Real Madrid, Jorge Valdano, er spenntur fyrir því að fá Christian Vieri til Santiago Bernabeu í sumar, minnugur hvernig “Bobo” raðaði inn mörkunum þegar hann lék með Atletico Madrid. Einn er þrándur í götu, og hann er sá að Intermenn vilja ekki aðeins $21 milljón fyrir Vieri heldur líka Fernando Morientes og Jose Maria Guti með í pakkann.
Jaaaaááááá ansi hreint líklegt, þið gufurugluðu pappakassar hjá Internazionale!!