Varaforseti Bayern München, goðsögnin Karl-Heinz Rummenigge, hefur tilkynnt að hinn eftirsótti framherji liðsins Giovane Elber muni klára samning sinn hjá liðinu sem er til ársins 2004. Það þýðir að AC Milan geta hætt að hugsa um hinn 29 ára gamla brassa.