Zinedine Zidane hefur opinberlega og staðfastlega neitað að hafa sagst hafa áhuga á að fara til Real Madrid. Hann segist aldrei hafa hitt blaðamann La Marca (spænska blaðið sem birti fréttina) og gefur ekki fimmeyring fyrir það sem þar er sagt. Þar fór sú stórfrétt fyrir lítið…