Leikmaður ársins í Afríku, Patrick Mboma hjá Parma virðist vera á förum frá hinum gulbláu til Englands, nánar tiltekið til SUnderland (?!?!). Parma horfa til AS Mónakó eftir staðgengli hans og vonast til að geta klófest Shabani Nonda, annan feikisterkan Afríkumann. Á leiktíðinni hefur hann skorað 12 mörk í 28 leikjum. Hitt er annað mál að það er ekki víst að hann vilji til Ítalíu - hann hefur þegar sagt nei við Inter (en hver myndi ekki segja nei við Inter, eins og mál eru þar á bæ?!?).