Þá er það opinbert að Allesandro Nesta, landsliðsvarnarjaxl hjá Lazio, hefur skrifað undir nýjan samning við Rómarliðið sem festir hann þar til ársins 2006. Svo Massimo Moratti og aðrir framámenn í Serie A geta gleymt því að krækja í hann. Þess má geta að laun hans á samningstímanum verða $25 millur.