Mér finnst Mourhino orðinn svoldið stór með sig ég meina hann er nánast búinn að segja það að hann munið vinna báðar deildinar og Carling Cup og var hann líka búinn að gæla við það að þeir tækju alla 4, er það bara ég eða er hann hrokagikkur? Vill ekki tala við Robben að því að hann er meiddur. Er bæði búinn að ásaka Sir Alex Ferguson og Frank Rijkaard um svindl. Hæðist að Arsenal, lýgur um uppstillingu, ef hann tapar þá kennir hann annað hvort dómaranum eða hinu liðinu um tapið og setur út á enskan fótbolta. Ég veit ekki hvað ykkur finnst en ég held að Mourinho sé bara hrokagikkur!
En það væri gaman að heyra hvað ykkur finnst um þetta.