Walter Samuel,leikmaður Real Madrid er nefbrotinn og verður frá keppni einhverjar vikur. Samuel sem skoraði sitt fyrsta mark fyrir Real Madrid gegn Mallorca í gær í 3-1 sigri liðsins, lendi í samstuði við Bernardo Romeo,leikmann Mallorca. Hann fór í myndatöku í morgun og er búið að panta aðgerð á sjúkrahúsi á morgun. Carles Puyol, leikmaður Barcelona varð fyrir svipuðum meiðslum og varð frá í 3 vikur.