í fyrra kvöld gekk Þorbjörn Atli Sveinsson frá félagaskiptum yfir í FRAM úr Fylki. Þorbjörn Atli lék með Fylkismönnum á síðasta leiktímabili. Þorbjörn Atli er FRÖMURUM að góðu kunnur enda lék hann með okkur áður en hann skipti í Fylki.
Þorbjörn Atli er markvarðahrellir hinn mesti og mikill keppnismaður sem er gott að hafa endurheimt. Það er ljóst að Bjössi mun styrkja leikmannahópinn verulega.
Það er gott fyrir framarana að fá hann aftur í Safamýrina vonast til að sjá allar hans bestu hliðar í sumar.