Upprennandi snillingur

Neil Mellor
Fæddur: 4.10.1982. England
Fyrrverandi klúbbar: uppalinn
Byrjaði / keyptur: Óskráð
Leikir/mörk fyrir 2004-2005:
Upplýsingar á LfcHistory.net: Skoða

Fleiri


Mellor skoraði 27 mörk í 23 leikjum fyrir u-19 ára liðið og 18 mörk í 18 leikjum með varaliðinu tímabilið 2001-2002. Fyrrverandi þjálfari hans hjá u-19 ára liðinu og núverandi þjálfari varaliðsins, Hughie McAuley, er stoltur af strák: “Neil er einn af þessum leikmönnum sem þefar upp marktækifæri í hverjum einasta leik. Hann elskar að skora mörk og virðist engu skipta hvort hann sé utan eða innan teigs. Hann er duglegur leikmaður sem lætur finna vel fyrir sér. Hann er svipaður leikmaður og Dion Dublin eða Mark Viduka; líkamlega sterkur og þrátt fyrir að vera ekki gæddur bestu boltatækni í heimi þá gegnir hann ávallt stóru hlutverki í leikjum. Hann hefur ótvíræða markaskorarahæfileika og það gildir einu hvort hann sé á æfingavellinum eða í kappleikjum, hann VERÐUR bara að skora mörk.”

Mellor var lánaður til West Ham 2003-2004 tímabilið en Glenn Roeder var skömmu síðar rekinn og Mellor fékk fá tækifæri hjá nýja framkvæmdastjóranum. Hann kom aftur til Liverpool eftir áramótin og hélt uppteknum hætti með varaliðinu