Liverpool hafa gert tilboð í Scott Carson, markvörð hjá Leeds. Eins og var sagt hér á Grasinu fyrir svolitlu síðan höfðu forráðamenn Liverpool áhuga að fá þennan undir 21 árs landsliðsmann Englands til sín. Samningur hans við Leeds rennur út í Júní og vildi hann ekki skrifa undir nýjan samning. Tilboð Liverpool er upp á 250.000 pund. Þá heyrast fréttir að Chelsea hafi einnig áhuga að fá Carson til sín.