Þróttur úr Reykjavík varð í gær Deildarbikarmeistari neðri deildar eftir 3-1 sigur á HK í úrslitaleik. . HK komst yfir á 48. mínútu þegar Valgarð Valgarðsson skoraði í rigningu og roki í Laugardalnum en Þróttarar jöfnuðu í næstu sókn. Þeir komust yfir um miðjan síðari hálfleikinn og innsigluðu sigurinn með marki á lokamínútunum.